Körfubolti

Öruggur sigur drekanna í Sundsvall

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Hlynur Bæringsson skoraði 20 stig þegar að Sundsvall Dragons vann öruggan sigur á Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sundsvall lenti ekki í teljandi vandræðum með andstæðing sinn í kvöld og var með nítján stiga forystu eftir fyrri hálfleik, 50-31.

Þetta var fyrsti sigur Sundsvall á tímabilinu en liðið tapaði fyrir Uppsala í fyrstu umferðinni. Jakob Sigurðarson msisti af þeim leik vegna meiðsla en hann var með í kvöld og skoraði fjórtán stig á 27 mínútum, auk þess að gefa þrjár stoðsendingar.

Hlynur spilaði í tæpa 31 mínútu og nýtti alls níu af þrettán skotum sínum í leiknum. Hann tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×