Körfubolti

CAI Zaragoza skoraði aðeins 50 stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu.
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson skoraði fjögur stig þegar að lið hans, CAI Zaragoza, tapaði fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Zaragoza skoraði aðeins 50 stig gegn 65 hjá sterku liði Barcelona en Jón Arnór lék í 24 mínútur, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Haukur Helgi Pálsson skoraði þrjú stig og tók tvö fráköst fyrir Assignia Manresa er liðið tapaði fyrir Valladolid, 83-81.

Zaragoza er í tíunda sæti deildarinnar með tvo sigra í fjórum leikjum. Manresa er hins vegar enn án stiga.

Í Danmörku skoraði Axel Kárason níu stig fyrir lið sitt, Værlöse, sem tapaði fyrir Bakken Bears. Lokatölur voru 87-69 en Axel tók einnig tíu fráköst í leiknum.

Værlöse er í níunda og næstneðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með tvö stig eftir fimm leiki. Bakken Bears hefur unnið alla sex leiki sína á tímabilinu til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×