Körfubolti

Stórsigur hjá Herði Axel

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher BC unnu þriðja sigur sinn í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld með því að leggja Neckar Riesen Ludwigsburg 96-76 að velli á heimavelli.

Hörður Axel lék 23 mínútur og skoraði 8 stig, gaf 3 stoðsendingar og hirti 4 fráköst.

Mitteldeutscher gaf tóninn strax í fyrsta leikhluta sem liðið sigraði 26-15. Liðið jók forystuna jafnt og þétt út leikinn en liðið hitti ótrúlega vel í leiknum.

Liðið skoraði úr 24 af 31 tveggja stiga skoti sínu og 8 af 19 þriggja stiga skotum. Með slíkri skotnýtingu getur liðið unnið nánast hvaða lið sem er í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×