Körfubolti

Jakob með stórleik í sigri Sundsvall

Jakob Örn.
Jakob Örn.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er enn á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir flottan útisigur, 65-72, á Stockholm Eagles.

Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru sem fyrr sterkir í liði Sundsvall. Jakob var stigahæstur með 24 stig. Hann tók einnig 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Hlynur skoraði 11 stig, tók 9 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins völtuðu yfir Solna Vikings, 91-76, á heimavelli sínum. Sigurinn mun öruggari en lokatölur gefa til kynna.

Pavel skoraði 9 stig, tók 7 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×