Körfubolti

Ótrúleg sigurkarfa vestanhafs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Körfuboltalið Glacier-skólans í Montana-fylki í Bandaríkjunum vann ótrúlegan sigur á Charles M. Russell skólanum í leik á dögunum.

Í myndbandinu sem fylgir fréttinni má sjá ótrúleg tilþrif úr leiknum. Sigurliðið skoraði þrjár flautukörfur í leiknum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Fyrsta karfan kemur undir lok fyrsta leikhluta en hlutirnir fóru að gerast fyrir alvöru í síðari hálfleik. Liðsmenn Glacier-skólans tryggðu sér framlengingu þegar flautan gall í venjulegum leiktíma.

Ótrúlegasta karfan var þó sú síðasta sem tryggði Glacier-liðinu sigur í lok framlengingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×