Skoðun

Þín vegna, af þinni hálfu, fyrir þig

Örn Bárður Jónsson skrifar
Ég hitti þær að loknum vinnudegi. Þær komu beint af vaktinni, dauðþreyttar, eftir að hafa hjúkrað öldruðum á fjölmennri deild, undirmannaðri og vanbúinni af tækjum. Deildin er kölluð biðdeild. Hún var opnuð á Landakoti eftir að líknardeildinni þar var lokað þrátt fyrir að yfirstjórnendur LHS hefðu fengið 50 milljóna króna aukafjárveitingu frá Alþingi eftir að Hollvinasamtök líknardeilda höfðu gengið á fund fjárlaganefndar. Deildinni var lokað í trássi við vilja Alþingis.

Í „hagræðingarskyni" var farið út í breytingar á líknardeildinni í Kópavogi og Oddfellowreglan látin greiða kostnaðinn að mestu. Þar átti, að sögn stjórnenda, að fjölga rúmum. Staðreyndin er sú að rúmum fyrir deyjandi hefur fækkað og nýja deildin fullbúin er lokuð vegna manneklu. Það kann að líta betur út í reikniforritum yfirstjórnar LHS að láta aðra greiða reikningana en þetta er nú samt allt úr sjóðum samfélagsins.

Í starfi mínu sem sóknarprestur hitti ég stundum fólk sem tjáir sig sorgmætt um þjónustuna sem í boði er fyrir aldraða við dauðans dyr.

Hrunið gerði okkur skráveifu en samt eru til miklir fjármunir í þjóðfélaginu. Álitamál er hins vegar hvernig þeim skuli varið. Þar kemur til sögunnar siðferði okkar og reisn.

Á Landakoti var búið að byggja upp frábæra líknardeild. Þegar til stóð að loka deildinni urðu Hollvinasamtök líknardeilda til með yfir 600 félögum. Samtökin hafa ekki lagt upp laupana, enda þótt orrustan um líknardeildina á Landakoti hafi tapast. Samtökin boða nú til ráðstefnu í Reykjavík 24. september nk. Þar verður fjallað um mótun heildarstefnu í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Við erum ein þjóð og þurfum öll að hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu frá vöggu til grafar.

Nú er komið að þeim skilum í íslenskri sögu að þjóðin lætur ekki lengur skammta sér úr hnefa á sama hátt og hún gerði. Forðum daga flutti Lincoln forseti Bandaríkjanna ávarp í Gettysburg og mælti þar fleyg orð um „stjórn fólksins, af hálfu fólksins og fyrir fólkið". Þessi orð þurfa að verða leiðarljós okkar Íslendinga í öllum málum – þín vegna, af þinni hálfu, fyrir þig.




Skoðun

Sjá meira


×