Íslenskar bækur björguðu löngum lestarferðum 3. október 2012 09:26 Kynningarferðir Kristofs á skáldsögunni Það var ekki ég nýttust til að þýða íslenskar bækur yfir á þýsku.
Íslenskar bækur voru sem kunnugt er í brennidepli á bókamessunni í Frankfurt í fyrra. Kristof Magnusson er meðal þeirra þýðenda sem kallaðir voru til til að þýða bækur og listi íslenskra bóka sem kom út í þýðingu hans á síðasta ári er ansi flottur. Grettis saga, Íslenskur aðall eftir Þórberg Þórðarson, Tíu ráð eftir Hallgrím Helgason, Ofsi eftir Einar Kárason, Konur eftir Steinar Braga, Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur, Blysfarir eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur auk ljóða eftir Hannes Sigfússon. Kristof segir hógvær að útgáfan hafi verið skipulögð með svo löngum fyrirvara að nægur tími hafi gefist til þýðinganna. „Ég var svo mikið í lestum árið 2010 þegarÞað var ekki ég kom út í Þýskalandi, og nýtti tímann vel. Útgáfunni fylgdu upplestrar um land allt og langar lestarsetur. Mér þykir mjög gott að þýða í lestum, það er ekkert Internet sem truflar og auðvelt að sökkva sér í verkið. Ef ég hefði ekki haft allar þessar góðu bækur hefði ég líklega orðið alveg hundleiður á þessum ferðalögum,“ segir Kristof og útskýrir að upplestrar séu ein aðaltekjulind þýskra höfunda sem séu því meira en til í að fara landshorna á milli til að kynna verk sín. „Það er mikil hefð fyrir þeim, sérstaklega í smærri bæjum er bóksalinn miðpunktur menningarlífsins og vel mætt á upplestra.“ Kristof fylgdi „sínum“ höfundum á upplestra í tengslum við bókamessuna sem hann segir hafa hitt algjörlega í mark í Þýskalandi. „Það eru engar ýkjur að hún tókst afar vel og íslenskar bækur vöktu mikla athygli.“
Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira