Körfubolti

Hörður Axel og Logi töpuðu báðir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði fimmtán stig þegar að lið hans, Mitteldeutscher BC, tapaði fyrir Tübingen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Tübingen vann þrettán stiga sigur, 90-83, en Hörður Axel var í byrjunarliðinu og spilaði í rúmar 26 mínútur. Hann gaf eina stoðsendingu í leiknum.

Mitteldeutscher er í fimmtánda sæti deildarinnar með átján stig en Tübingen í áttunda sætinu.

Í frönsku C-deildinni tapaði Angers fyrir Chartres Metropole, 69-58. Logi var í byrjunarliði Angers og skoraði 10 stig á tæpum 24 mínútum. Hann tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Angers er í tólfta sæti deildarinnar af sextán liðum alls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×