Körfubolti

Hörður Axel frábær í sigri Mitteldeutscher

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mynd/Stefán
Hörður Axel Vilhjálmsson lék mjög vel fyrir Mitteldeutscher sem lagði LTi Giessen 46ers 89-76 í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Sigur Mitteldeutscher var aldrei í hættu.

Mitteldeutscher var ellefu stigum yfir í hálfleik 44-33 og var leikurinn í raun aldrei spennandi.

Hörður fór hreinlega á kostum í leiknum. Hann skoraði 16 stig þar sem hann hitti úr 5 af 6 tveggja stiga skotum sínum og 2 af 4 þriggja stiga skotum sínum. Hörður gaf auk þess 10 stoðsendingar í leiknum.

Mitteldeutscher er um miðja deild með 22 stig í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni en 46ers er á botninum með 2 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×