Körfubolti

Axel og félagar töpuðu fyrsta leiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Axel Kárason.
Axel Kárason. Mynd/Heimasíða Værlöse
Úrslitakeppnin í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta hófst í kvöld. Værlöse, lið Axels Kárasonar, tapaði fyrir Svendborg í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitunum.

Svendborg varð deildarmeistari en Værlöse endaði í áttunda sæti. Það var þó jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en dró í sundur með þeim í þeim síðari. Lokatölur 86-71, Svendborg í vil.

Axel Kárason lék í tæpar 23 mínútur í leiknum og skoraði þrjú stig auk þess að taka þrjú fráköst. Hann nýtti eitt af fimm skotum sínum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×