Körfubolti

Frábær fyrri hálfleikur hjá Helenu og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice byrja vel í úrslitakeppni Euroleague en slóvakíska liðið vann sex stiga sigur á tyrkneska liðinu Galatasaray, 71-65, í fyrsta leik riðilsins.

Helena skoraði 2 stig á þeim 12 mínútum sem hún spilaði í leiknum en Good Angels Kosice vann þessar tólf mínútur með þremur stigum. Helena hitti úr eina tveggja stiga skoti sínu en klikkaði á eina þriggja stiga skotinu.

Bandaríski framherjinn Plenette Pierson var stigahæst með 15 stig en landi hennar Alexandria Quigley skoraði 13 stig.

Good Angels Kosice lagði grunninn að sigri sínum með frábærum fyrri hálfleik sem liðið vann með 30 stigum eða 46-16.

Good Angels Kosice mætir heimamönnum í UMMC Ekaterinburg á morgun en leikið er í Rússlandi. Ekaterinburg vann öruggan 68-45 sigur á pólska liðinu Polkowice í hinum leik riðilsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×