Fótbolti

Bann Balotelli stytt um einn leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Bann Mario Balotelli, leikmanns AC Milan, hefur verið stytt um einn leik en hann missir samt af leiknum gegn Ítalíumeisturum Juventus á sunnudaginn.

Balotelli fékk eins leiks bann þegar hann fékk fjórða gula spjaldið sitt í 2-2 jafntefli gegn Fiorentina á dögunum. Tveimur leikjum var svo bætt við fyrir að rífast í aðstoðardómara eftir leikinn.

En AC Milan áfrýjaði dómnum og var þetta niðurstaðan. Balotelli getur spilað með AC Milan á ný þann 28. apríl næstkomandi þegar að liðið mætir Catania.

Balotelli hefur skorað sjö mörk í átta leikjum fyrir AC Milan síðan hann kom til liðsins frá Manchester City í janúar síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×