Körfubolti

Fyrsta tap Englanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Englarnir fögnuðu aldrei þessu vant ekki sigri í dag.
Englarnir fögnuðu aldrei þessu vant ekki sigri í dag.
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels frá Kosice biðu lægri hlut 82-65 gegn MBK Ruzomberok í úrslitaeinvíginu um slóvneska meistaratitilinn í körfubolta í dag.

Englarnir unnu þægilegan sigur í fyrsta leiknum en máttu sætta sig við tap í dag. Tapið var nokkuð óvænt í ljósi þess að liði fór taplaust í gegnum deildarkeppnina.

Helena Sverrisdóttir var ekki á meðal stigahæstu leikmanna Englanna í dag. Liðin mætast þriðja sinni í Kosice á miðvikudagskvöld. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×