Körfubolti

Jón Arnór með 9 stig í sannfærandi útisigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson skoraði 9 stig þegar CAI Zaragoza vann 23 stiga útisigur á Mad-Croc Fuenlabrada í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Sigurinn kemur Zaragoza-liðinu upp í fimmta sæti deildarinnar.

Jón Arnór spilaði í tæpar 22 mínútur í leiknum en hann var auk stiganna 9 með 5 fráköst og 2 stoðsendingar. Jón Arnór hitti úr 4 af 9 skotum sínum utan af velli en klikkaði á báðum vítaskotunum sínum.

Liðsmenn CAI Zaragoza voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum en liðið setti alls niður þrettán þrista í þessum örugga sigri. Jón Arnór skoraði einn þeirra en Pedro Llompart setti niður fimm þriggja stiga skot og var stigahæstur í liðinu með 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×