Körfubolti

Jón Arnór: Var ekki sáttur við spilatímann

Stefán Árni Pálsson skrifar

Jón Arnór Stefánsson, leikmaður CAI Zaragoza, var nokkuð sáttur við frammistöðu liðsins gegn Real Madrid þrátt fyrir að liðinu hafi verið sópað út úr undanúrslitunum 3-0.

„Við svona héldum í við þá fyrstu þrjá leikhlutana og vorum að spila vel,“ sagði Jón Arnór Stefánsson, leikmaður CAI Zaragoza,  eftir leikinn í gær.

„Maður hafði það samt í raun alltaf á tilfinningunni í seinni hálfleiknum að þeir myndu klára leikinn.“

„Heimvöllurinn hjálpaði okkur mikið í kvöld og þvílík læti í okkar áhorfendum allan leikinn. Það var löngu uppselt og frábært að spila í okkar höll.“

„Ég var kannski ekki sáttur með það hversu lítið ég fékk að spila í leiknum í kvöld. Við stóðum okkur vel í einvíginu.“

Hægt er að sjá myndbandið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×