Körfubolti

Jovan og Lára kveðja Garðabæinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Valli

Karla- og kvennalið Stjörnunnar hafa misst sterka leikmenn úr liðum sínum. Stjörnuparið Jovan Zdravevski og Lára Flosadóttir eru á leið til Svíþjóðar og verða ekki með liðum sínum á næstu leiktíð.

Á vefsíðunni Karfan.is er birt tilkynning frá Jovan vegna brottfarar þeirra. Þar kemur fram að ákvörðunin hafi verið erfið og tilfinningaþrungin. Hann vilji hins vegar taka næsta skrefið á ferli sínum og leitar að nýrri áskorun.

„Stjarnan hefur verið besta félagið og mér hefur liðið eins og heima hjá mér. Viðmót fólksins í kringum félagið og leikmanna þess gagnvart mér hefur verið frábært."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×