Körfubolti

Sjáðu stelpurnar spila um gullið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/KKÍ

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leik Íslands og Lúxemborgar um gull í körfubolta kvenna á Smáþjóðaleikunum á vef leikanna. Leikurinn hefst klukkan 12.

Íslensku stelpurnar hafa unnið báða leiki sína til þessa á leikunum, rétt eins og heimamenn í Lúxemborg.

Kýpverjar náðu sér í brons í körfubolta kvenna fyrr í dag eftir sigur á Möltu.

Helenu Sverrisdóttur vantar aðeins eitt stig upp á að jafna stigamet Önnu Maríu Sveinsdóttur hjá A-landsliðinu.

Hér er hægt að fylgjast með tölfræði leiksins en leikinn má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×