Körfubolti

Kyssti mótherja í miðjum leik í úrslitakeppni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diana Taurasi.
Diana Taurasi. Mynd/NordicPhotos/Getty
Diana Taurasi og Seimone Augustus, tveir af bestu leikmönnum WNBA-deildarinnar í körfubolta lenti saman í leik liðanna í úrslitakeppninni í gærkvöldi en Taurasi sá til þess að ósætti þeirra komst í heimsfréttirnar.

Diana Taurasi og Seimone Augustus hafa verið vinir lengi og þekkjast því afar vel. Það breytir því ekki að þessir tveir miklu keppnismenn láta finna fyrir sér þegar þær mætast inn á vellinum.

Diana Taurasi var annar stigahæsti leikmaður WNBA á tímabilnu með 20,3 stig í leik en hún varð einnig önnur í stoðsendingum með 6,2 stig í leik. Seimone Augustus endaði sú 9. stigahæsta með 16,3 stig að meðaltali í leik.

Diana Taurasi og Seimone Augustus fóru að ýta hvorri annarri í fjórða leikhluta og það endaði með því að þær stóðu upp við hvora aðra og það stefndi í slagsmál. Taurasi tók sig þá til og smellti kossi á Augustus.

Það er hægt að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan en viðbrögð lýsandans eru mjög skemmtilegt því hann fer strax að hlæja. Dómaranum var hinsvegar ekki skemmt og gaf þeim báðum villu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×