Körfubolti

De Gea og Ibaka létu mynda sig saman eftir leik OKC og 76ers

Stefán Árni Pálsson skrifar
De Gea og Serge Ibaka í gær.
De Gea og Serge Ibaka í gær. mynd / twittersíða de Gea
Oklahoma City Thunder og Philadelphia 76ers mættust í æfingaleik í Manchester í gær en liðin eru að undirbúa sig fyrir átökin í NBA-deildinni í vetur.

OKC vann góðan sigur 103-99 eftir að hafa verið þremur stigum undir í hálfleik 51-48.

Kevin Durant, leikmaður OKC, tók yfir í þriðja leikhlutanum og kláraði leikinn fyrir Oklahoma City Thunder.

David de Gea, markvörður Manchester United, var mættur á leikinn og hitti þar fyrir landa sinn Serge Ibaka, leikmann OKC.

Þeir félagar voru myndaðir saman og birti spænski markvörðurinn myndina af þeim á twitter-síðu sinni sem má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×