Körfubolti

Haukur Helgi með flottan leik í sex stiga sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haukur Helgi Pálsson
Haukur Helgi Pálsson Mynd/Heimasíða CB Breogan
Haukur Helgi Pálsson stimplaði sig rækilega inn í fyrsta leik sínum með Breogan í b-deild spænska körfuboltans í kvöld.

Breogan hafði eins stigs forskot fyrir lokafjórðunginn þar sem liðið reyndist sterkara og tryggði sér sigur 76-70.

Haukur Helgi byrjaði á bekknum en nýtti vel þær 25 mínútur sem hann átti eftir að spila. Fjölnismaðurinn skoraði 14 stig, tók 3 fráköst, átti tvær stoðsendingar auk þess að stela tveimur boltum. Skotnýting hans var 67 prósent og var hann stigahæstur í liðinu ásamt tveimur kollegum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×