Körfubolti

Jón Arnór bætti stigametið sitt um sex stig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson átti frábæran leik í gær þegar lið hans CAI Zaragoza vann 86-82 útisigur á Río Natura Monbús í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jón Arnór skoraði 28 stig á tæpum 23 mínútum í leiknum en hann hitti úr 7 af 10 skotum sínum þar af 6 af 9 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Jón Arnór skoraði fimmtán stigum meira en næststigahæsti leikmaður Zaragoza-liðsins.

Jón Arnór setti með þessari mögnuðu frammistöðu nýtt persónulegt met í stigaskori í spænsku ACB-deildinni sem er að flestum talin vera sú sterkasta í Evrópu.

Jón Arnór hafði mest áður skorað 22 stig en það gerði hann sem liðsmaður CB Granada tímabilið 2009-10. Jón Arnór spilaði þá í 23 mínútur á móti Lagun Aro GBC og nýtti 7 af 14 skotum sínum.

Þetta var í fjórða sinn sem hann braut tuttugu stiga múrinn í deildinni en það hafði síðast gerst í Íslendingaslag á móti Hauki Helga Pálssyni í nóvember 2011.



Hér fyrir neðan má sjá lista yfir stigahæstu leiki Jóns Arnórs á hverju tímabili sínu í spænsku úrvalsdeildinni.

Flest stig hjá Jóni Arnóri í einum leik í spænsku ACB-deildinni

2013-14 CAI Zaragoza

28 stig á móti Río Natura Monbús (27/10/2013)

2012-13 CAI Zaragoza

16 stig á móti Asefa Estudiantes (11/11/2012)

16 stig á móti Blancos de Rueda Valladolid (19/04/2013)

2011-12 CAI Zaragoza

20 stig á móti Assignia Manresa (20/11/2011)

16 stig á móti Asefa Estudiantes (12/02/2012)

15 stig á móti DKV Joventut (15/01/2012)

2010-11 CB Granada

21 stig á móti Menorca Bàsquet (09/03/2011)

19 stig á móti DKV Joventut (12/12/2010)

17 stig á móti Cajasol (06/03/2011)

17 stig á móti Unicaja (05/05/2011)

2009-10 CB Granada

22 stig á móti Lagun Aro GBC (02/05/2010)

19 stig á móti DKV Joventut (27/02/2010)

18 stig á móti Cajasol (27/03/2010)

2006-07 Pamesa Valencia

11 stig á móti Etosa Alicante (15/10/2006)

11 stig á móti Etosa Alicante (21/01/2007)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×