Körfubolti

Axel með flotta tvennu í góðum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Kárason.
Axel Kárason. Mynd/Anton
Axel Kárason og félagar í Værlöse BBK unnu góðan átta stiga heimasigur á Horsens IC, 78-70, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Værlöse endaði um leið þriggja leikja taphrinu sína í deildinni.

Axel Kárason átti flottan leik í kvöld en hann var með 14 stig og 11 fráköst. Axel var sjóðheitur fyrir utan þriggja stiga línuna því að hann smellti niður 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum. 6 af 11 fráköstum hans komu síðan í sókninni.

Axel varð frákastahæstur í Værlöse-liðinu í leiknum og var ennfremur þriðji stigahæstur. Bandaríkjamaðurinn Troy Brewer skoraði 23 stig í kvöld.

Værlöse komst með þessu upp af botni deildarinnar en liðið er nú með fjögur stig eins og lið Horsens IC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×