Körfubolti

Sundsvall tapaði en Íslendingarnir áttu allir góðan leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd / Valli
Jämtland vann góðan heimasigur á Sundsvall Dragons,103 – 96, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en með Sundsvall leika þeir Jakob Sigurðsson, Hlynur Bæringsson og Ægir Steinarsson.

Íslendingarnir stóðu fyrir sínu í leikum í kvöld en Hlynur Bæringsson gerði 24 stig og tók átta fráköst. Jakob Sigurðsson gerði 19 stig og Ægir var með 14 stig.

Sundsvall er í fjórða sæti deildarinnar á meðan Jämtland er í því sjöunda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×