Handbolti

Dröfn í ÍBV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dröfn með Guðnýju Jenný Ásmundsdóttur á EM í Serbíu.
Dröfn með Guðnýju Jenný Ásmundsdóttur á EM í Serbíu. Mynd/Stefán

ÍBV hefur fundið arftaka Florentinu Stanciu því Dröfn Haraldsdóttir, leikmaður FH, samdi við liðið í fyrradag.

Jón Gunnlaugur Viggósdóttir, nýráðinn þjálfari ÍBV, staðfesti það við Fréttablaðið.

„Hún er frá Vestmannaeyjum og er því að koma heim,“ sagði Jón sem segir að lið sitt verði fyrst og fremst byggt upp á heimamönnum.

Dröfn Haraldsdóttir hefur verið í íslenska landsliðshópnum í undanförnum verkefnum og var varamarkvörður landsliðsins á EM í Serbíu í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×