Körfubolti

Pressa á Jóni Arnóri og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. MYND/RAMÓN CORTÉS WWW.CAISTAS.NET

Annar leikur CAI Zaragoza og Real Madrid í undanúrslitum spænsku deildarinnar fer fram í dag. Real vann fyrsta leik liðanna með átta stigum, 84-76, en Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza stóðu í stórliðinu lengi vel.

Þeir hafa komið allra liða mest á óvart í spænska boltanum í vetur og sýndu í rimmunni gegn Valencia í átta liða úrslitum að liðið getur gert ótrúlegustu hluti. Það er því fullsnemmt að afskrifa Jón og félaga strax.

Jón Arnór skoraði sjö stig í fyrsta leiknum ásamt því að leika vel í vörninni. Þeir þurfa helst að vinna leik dagsins því annars er liðið komið í erfiða stöðu í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitarimmuna og mun þriðji leikur liðanna fara fram næstkomandi þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×