Körfubolti

Hlynur tryggði Sundsvall dramatískan sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson var magnaður í kvöld.
Hlynur Bæringsson var magnaður í kvöld. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson var hetja Sundsvall Dragons er liðið vann frábæran eins stigs sigur á Solna Vikings, 89-88.

Hlynur skoraði sigurkörfu Drekanna með sniðskoti þegar tvær sekúndur voru eftir af leiknum en Solna hafði verið með undirtökin í leiknum fram í miðjan fjórða leikhluta.

Hlynur var stigahæstur í liði Sundsvall með 17 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson skoraði fjórtán stig og Jakob Sigurðarson þrettán.

Sundsvall er í fjórða sæti deildarinnar með 34 stig en Solna er í því sjötta með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×