Körfubolti

Jón Arnór með sautján stig | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu.
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Stefán
Jón Arnór Stefánsson skoraði sautján stig þegar CAI Zaragoza tapaði fyrir Gran Canaria, 84-77, í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Jón Arnór var næststigahæstur í liði Zaragoza en auk stiganna tók hann þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu á tæpum 27 mínútum.

Jafnfræði var með liðunum allan leikinn en Gran Canaria var með frumkvæðið lengst af og leiddi í hálfleik, 46-41.

CAI Zaragoza er í sjötta sæti deildarinnar með þrettán sigra í 22 leikjum. Gran Canaria er í fjórða sætinu með fimmtán sigra.

Hér fyrir neðan má sjá samantekt úr leiknum sem birtist á heimasíðu ACB-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×