Körfubolti

Helena stigahæst í sigurleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá ungverska liðinu DVTK Miskolc í sex stiga heimasigri á toppliði HAT AGRO UNI Gyõr í ungversku kvennadeildinni í körfubolta í dag.

Helena skoraði 13 stig á 24 mínútum í leiknum og íslenska landsliðskonan var einnig með 5 fráköst og 2 stoðsendingar. Helena var önnur hæst í framlagi í sínu liði (17), tveimur stigum á eftir hinni bandarísku Rebeccu Tobin sem var með 9 stig og 17 fráköst.

Gyõr var aðeins búið að tapa tveimur leikjum á tímabilinu og þetta var því mjög flottur sigur hjá Helenu og félögum hennar í liði DVTK Miskolc.

DVTK Miskolc er í þriðja til fjórða sæti deildarinnar en liðið byrjaði ekki að spila í deildinni heima fyrir fyrr en eftir áramót þar sem að allir leikir fyrir áramóti voru annað hvort í Evrópukeppninni eða Mið-Evrópumótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×