Körfubolti

Lauflétt hjá Drekunum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson gaf 7 stoðsendingar á 23 mínútum í kvöld.
Ægir Þór Steinarsson gaf 7 stoðsendingar á 23 mínútum í kvöld. Vísir/Valli
Sundsvall Dragons vann 27 stiga heimasigur á Jämtland Basket, 89-62, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en Drekarnir voru ekki í miklum vandræðum í kvöld.  

Hlynur Bæringsson var með 8 stig og 8 fráköst í leiknum, Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig og Ægir Þór Steinarsson var með 5 stig og 7 stoðsendingar. Allir léku þeir á bilinu 20 til 23 mínútur í þessum leik.

Sundsvall Dragons var komið í 26-18 eftir fyrsta leikhlutann og var 20 stigum yfir í hálfleik, 49-29. Liðið var síðan með 34 stiga forskot fyrir fjórða leikhlutann og gat leyft sér að tapa lokaleikhlutanum 13-20.

Sundsvall Dragons liðið hefur nú unnið sex leiki í röð en íslenski bakvörðurinn Ægir Þór Steinarsson hefur hjálpað liðinu mikið eftir að hann kom aftur inn eftir meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×