Körfubolti

Helena stigahæst í sjöunda sigurleiknum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í DVTK Miskolc unnu öruggan 31 stigs útisigur á MKB Euroleasing Vasas, 81-50, í ungversku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sigurinn kemur Miskolc í toppsæti deildarinnar en liðið hefur spilað mjög vel eftir áramót og var þarna að vinna sinn sjöunda deildarleik í röð.

Helena átti mjög góðan leik en hún var stigahæst hjá Miskolc-liðinu með 22 stig auk þess að taka 9 fráköst á 28 mínútum.

Helena hitti meðal annars úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum en hún er alltaf að verða betri og betri fyrir utan þriggja stiga línuna.

Miskolc vann þær 28 mínútur sem Helena spilaði með 29 stigum en hún skoraði 13 af stigum sínum í fyrri hálfleiknum sem Miskolc vann 35-31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×