Körfubolti

Sjáðu tröllatroðslur Ólafs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ólafsson. Vísir/Daníel
Ólafur Ólafsson fór á kostum í sigri Grindavíkur á Þór í úrslitakeppni Domino's-deildarinnar í gær.

Ólafur átti tvær svakalegar troðslur í leiknum í gær en þar að auki var hann heitur utan þriggja stiga línunnar og skoraði alls 29 stig í leiknum.

Hann lét Ragnar Nathanaelsson, sem er 2,18 m, ekki stöðva sig og tróð yfir hann með tilþrifum.

„Ég tróð yfir hann líka þegar hann var í Hveragerði. Ég hef samt aldrei fengið það á spólu en þetta er vonandi til að myndbandi. Ég fór bara framhjá manninum mínum og þá birtist súlan."

„Ég ákvað bara að láta vaða en í sannleika sagt hélt ég að hann myndi verja skotið. En mér tókst að troða boltanum ofan í og líka með þessum krafti sem ég bjóst ekkert við. Ég setti Ragga allavega á plakat. Vonandi náði einhver þessu á mynd," sagði Ólafur við Vísi eftir leikinn í gær.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×