Körfubolti

Lokaskot Jakobs geigaði og Sundsvall tapaði

Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. vísir/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons mátti sætta sig við sárt tap, 67-70, á heimavelli í fyrsta leik sínum í úrslitakeppninni gegn Uppsala Basket.

Þetta var hörkuleikur og jafn lengstum. Jakob Örn Sigurðarson gat jafnað leikinn fyrir Sundsvall en þriggja stiga skot hans í blálokin fór ekki niður.

Jakob skorað 10 stig í leiknum og tók 3 fráköst. Hlynur Bæringsson skoraði 11 stig, tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson skoraði 4 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×