Körfubolti

Öqvist hættur með Drekana | Veit ekki hvað tekur við

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Peter Öqvist gerði frábæra hluti sem landsliðsþjálfari í körfubolta.
Peter Öqvist gerði frábæra hluti sem landsliðsþjálfari í körfubolta. Vísir/Daníel
Svíinn Peter Öqvist, þjálfari sænska liðsins Sundsvall Dragons og fyrrverandi þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta, er hættur að þjálfa Drekana eftir ellefu ár við stjórnvölinn.

Fram kemur á basketsvergie.se að orðrómur hafi verið uppi um að Öqvist myndi hætta eftir tímabilið og hann var staðfestur í gær þegar Öqvist tilkynnti um brotthvarf sitt á blaðamannafundi.

Öqvist gaf frá sér landsliðsþjálfarastarf Íslands vegna fjölskylduástæðna en hann sóttist eftir sænska starfinu sem hann var talinn líklegur að fá. Hann var þó ekki ráðinn landsliðsþjálfari og er því atvinnulaus.

„Ég er alveg tómur. Ég mun nú hefja leit að starfi í körfuboltanum og líka í atvinnulífinu. Kannski er einhver sem vill nýta krafta mína í öðru samhengi en í körfuboltanum,“ sagði Öqvist.

LF Basket og Jämtland Basket, liðin sem enduðu í 7. og 8. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, eru sögð vera á höttunum eftir honum.

„Ég hef ekki talað við nein lið í Svíþjóð né erlendis. Ég er bara búinn að einbeita mér að átta liða úrslitunum í deildinni,“ sagði Peter Öqvist.

Hann gerði Sundsvall Dragons þrívegis að sænskum meisturum á ellefu árum en síðast varð liðið meistari árið 2011 með JakobÖrnSigurðarson og HlynBæringsson innanborðs. Þeir eru báðir leikmenn Sundsvall í dag sem og ÆgirÞórSteinarsson.

Allir þrír eru landsliðsmenn Íslands og hafa því misst Öqvist sem þjálfara hjá félagsliði og landsliði með nokurra vikna millibili.

Mikil eftirsjá er af Öqvist sem landsliðsþjálfara Íslands en undir hans stjórn tók liðið miklum framförum. Nú síðast í dag sagði Jón Arnór Stefánsson við Fréttablaðið að hann vildi ólmur halda Svíanum.

Nýr þjálfari Sundsvall er Svíinn Tommie Hansson en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.


Tengdar fréttir

Öqvist verður ekki áfram með landsliðið

Svíinn Peter Öqvist verður ekki áfram landsliðsþjálfari karla í körfubolta eins og vonir stóðu til en hann hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár.

Öqvist: Sumrin á Íslandi voru yndisleg

„Það var alltaf vitað að ég myndi ekki þjálfa Ísland til eilífðar,“ segir Peter Öqvist í samtali við Vísi en Svíinn sagði starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari karla í körfubolta í dag.

Jón Arnór: Öqvist getur gert okkur betri

Svíinn Peter Öqvist, sem þjálfað hefur íslenska landsliðið í körfubolta undanfarin tvö ár, liggur nú undir feldi og íhugar tilboð Körfuknattleikssambands Íslands um að halda áfram með liðið.

Jón Arnór sér eftir Peter Öqvist

Jón Arnór Stefánsson spilaði vel í mögnuðum sigri CAI Zaragoza gegn stórveldinu Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×