Körfubolti

Helena og félagar örugglega inn í undanúrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í DVTK-Miskolc eru komnar áfram í undanúrslit í ungversku kvennadeildinni í körfubolta eftir öruggan sigur á  MTK-Budapest í tveimur leikjum í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Helena var með 11 stig, 7 fráköst, 4 stolna bolta og 3 stoðsendingar á 24 mínútum í 80-49 sigri í gær en aðeins einn leikmaður liðsins var með hægra framlag en hún í leiknum. Helena skoraði 10 stig í fyrri leiknum sem vannst 90-62.

Miskolc-liðið vann síðustu tíu deildarleiki sína og hefur þar með unnið tólf leiki í röð í ungversku deildinni.   

DVTK-Miskolc mætir PINKK-Pecsi í næstu umferð en bæði liðin unnu einvígi sín 2-0.  Miskolc er með heimavallarréttinn enda varð liðið deildarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×