Hægt er að horfa á beina útsendingu frá Holuhrauni úr vefmyndavél Mílu í spilaranum hér fyrir ofan.
„Hér er náttúrulega gliðnunarhrina í gangi og því verða gosin stærri og stærri,“ segir Ármann. Hann segir sprunguna ná allt að kílómeter lengra til norðurs, en sú sem myndaðist á föstudaginn.
Upprunalega var talið að gosið væri minna en það sem átti sér stað á föstudaginn en svo virðist ekki vera. Mikill vindur er á svæðinu og moldrok veldur því að erfitt er að sjá sprunguna í heild. Ármann náði þó nokkrum mögnuðum myndum sem sjá má hér að neðan.
Veðurstofan hefur sett viðbúnað vegna flugs aftur á rautt vegna gossins sem nú er í Holuhrauni við Bárðarbungu.
Hættustig almannavarna er enn í gildi og að svo stöddu hefur ekki þótt ástæða til að breyta því samkvæmt tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Uppfært 08:28
Samkvæmt grófu mati jarðvísindamanna er sprungan um einn og hálfur kílómetri að lengd og ná hæstu hraunstrókarnir allt að sextíu metra hæð. Þetta kemur fram á Facebooksíðu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Uppfært 12:30
Magnús Tumi Guðmundsson segir gosið í dag margfalt stærra en það sem varð aðfaranótt föstudags. Það sé svipað að stærð og Kröflueldar. Nánar um það hér.
Þá segir Þorbjörg Ágústsdóttir, doktorsnemi í jarðeðlisfræði sem staðsett er nærri gosinu, það sérstaklega fallegt hraungos. Nánar um það hér.
Uppfært 13:00
Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:
-Hraungos hófst í Holuhrauni, líklega upp úr kl. 04 í nótt, á sama stað og gaus fyrir tveimur dögum. Sprungan virist vera uþb. 1,5 km löng. Tekið var eftir því á vefmyndavél Mílu um 05:51. Færri skjálftar fylgja gosinu en því fyrra, en meira hraun kemur upp.
-Hraunstraumurinn var uþb 1 km breiður og um 3 km langur til norðausturs um kl. 07:30. Hraunið er talið nokkurra metra þykkt og flæðið var að líkindum um 1000 m3 á sek.
-Skjálftavirkni hefur verið lítil á gossvæðinu. Um 500 skjálftar hafa mælst á svæðinu, sá stærsti 3,8 í Bárðarbunguöskjunni. Óveður á svæðinu gerir það að verkum að minni skjálftar greinast verr.
-GPS-mælingar sýna áframhaldandi gliðnun á svæðinu norðan Dyngjujökuls. Gasbólstrar rísa frá sprungunni í nokkur hundruð metra hæð.
-Veðurskilyrði gera erfitt að fylgjast með gosinu en vísindamenn eru á staðnum og nota hvert tækifæri til þess að afla upplýsinga um kviku- og gas útstreymi
-Athugað verður hvort hægt er að fljúga yfir gosstöðvarnar síðar í dag en veður hamlar flugi í augnablikinu.
Frá Veðurstofu Íslands: Litakóði fyrir flug er rauður fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.
Aviation color for #Bardarbunga has been changed to RED http://t.co/hKNDgJphRO pic.twitter.com/eSgNuu5TAg
— Bárðarbunga Volcano (@Bardarbunga_IS) August 31, 2014