Körfubolti

Brasilía síðasta þjóðin í 8-liða úrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Nene skoraði sjö stig.
Nene skoraði sjö stig. vísir/getty
Brasilía var síðasta þjóðin til að tryggja sér í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins á Spáni, en þeir unnu nágrannaslaginn gegn Argentínu í kvöld.

Argentína byrjaði betur og vann fyrsta leikhlutann 21-13, en eftir það tóku Brassarnir við sér og unnu að lokum 20 stiga mun, 85-65.

Raulzinho Neto var stigahæstur hjá Brasilíu með 21 stig, en hjá Argentínu var það Pablo Prigioni. Hann skoraði 18 stig og tók fjögur fráköst.

Brasilía mætir Serbíu í 8-liða úrslitum keppninnar á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×