Körfubolti

Sigur í fyrsta leik Helenu í Póllandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Helena var í sigurliði
Helena var í sigurliði vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir lék sinn fyrsta leik með Polkowice í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Lið hennar hóf tímabilið með sigri á Sleza Wroclaw 63-54.

Helena var í byrjunarliði Polkowice og skoraði 5 stig á rúmum 26 mínútum auk þess að taka 4 fráköst og gefa eina stoðsendingu.

Á sama tíma skoraði Hörður Axel Vilhjálmsson 11 stig fyrir Mitteldeutscher sem lagði Trier 77-74 í þýsku 1. deildinni í körfubolta.

Hörður lék í 34 mínútur, gaf 6 stoðsendingar og hirti 2 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×