Körfubolti

Haukur og félagar töpuðu í lokin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Helgi með Peter Öqvist, fyrrum landsliðsþjálfara og núverandi þjálfara LF Basket.
Haukur Helgi með Peter Öqvist, fyrrum landsliðsþjálfara og núverandi þjálfara LF Basket. Vísir/Anton
LF Basket tapaði fyrir Uppsala, 80-76, á heimavelli sínum í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þrátt fyrir að hafa verið yfir þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Gestirnir komu sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum en LF Basket situr eftir í því fjórða með átta stig. Uppsala og Södertälje eru með tíu stig og Borås á toppnum með tólf.

Haukur Helgi Pálsson var í byrjunarliði LF Basket og spilaði í tæpar 36 mínútur. Hann skoraði fjórtán stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann stal boltanum þrívegis en tapaði honum jafnoft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×