Dramatískasta stundin í bandarískum íþróttum á árinu | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2014 22:30 Lauren Hill. Vísir/AP
Lauren Hill, 19 ára körfuboltastelpa í Mount St. Joseph háskólanum, spilaði aðeins 47 sekúndur í fyrsta leik tímabilsins en þessar sekúndur voru kannski þær allra dramatískustu á þessu ári í bandarísku íþróttalífi. Lauren Hill er dauðvona því hún greindist með ólæknandi krabbamein í höfði aðeins 48 dögum eftir að hún ákvað að spila fyrir Mount St. Joseph háskólaliðið. Hún fékk þær fréttir í september að hún ætti aðeins nokkrar vikur eftir. „Ég hélt að ég myndi aldrei fá að spila háskólakörfubolta en um leið og ég steig inn á gólfið þá fann ég titringinn frá öll fólkinu. Mér hefur aldrei liðið svona vel á allri ævinni," sagði Lauren Hill en hún skoraði fyrstu körfu leiksins eftir 17 sekúndur. „Ég bjóst bara við lítilli umgjörð og að þetta yrði bara fyrir okkar samfélag hérna. Þetta samfélag er bara svo stórt og við erum öll í þessu saman. Allir sameinuðust í dag og þetta var stórkostlegt," sagði Lauren sem var ekki viss um að geta spilað næsta leik liðsins. Mount St. Joseph háskólinn fékk að færa fyrsta leik tímabilsins fram svo að Lauren Hill, fengi að upplifa drauminn sinn um að spila körfubolta í háskóla. Um 100 manns koma venjulega á leiki liðsins en nú var allt annað upp á teningnum. Tíu þúsund manns fylltu höllina á leiknum og í áhorfendaskaranum mátti finna leikmenn úr bæði WNBA og NFL. „Draumur Laurenar um að spila körfubolta í Mount-búningi rætist í dag. Tíu þúsund manns eru samankomin til að upplifa þetta með henni og í dag spilum við fyrir 22," sagði Dr. Tony Aretz, forseti Mount St. Joseph háskólans fyrir leikinn en Lauren spilaði í treyju númer 22. Hér fyrir neðan má sjá frétt CBS um Lauren Hill og leikinn.Lauren Hill með Pat Summitt, eins virtasta köfuboltaþjálfara allra tíma.Vísir/AP
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira