Baldur Sigurðsson samdi við SönderjyskE Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. nóvember 2014 09:00 Baldur Sigurðsson lyftir ekki fleiri bikurum fyrir KR í bili. vísir/daníel
Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR í Pepsi-deild karla í fótbolta, er genginn í raðir danska úrvalsdeildarliðsins SönderjyskE, en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Baldur skrifaði undir eins árs samning við danska liðið en með möguleika á að framlengja um tvö ár til viðbótar. „Baldur Sigurðsson kom á reynslu til okkar og stóð sig vel. Hann getur spilað margar stöður bæði í vörn og sókn. Hann er týpískur Íslendingur sem leggur mikið á sig. Hann kemur líka með mikla reynslu í liðið,“ segir Hans Jörgen Haysen, yfirmaður knattspyrnumála hjá SönderjyskE. Brotthvarf Baldurs er mikið áfall fyrir KR, en hann hefur verið einn allra besti leikmaður Pepsi-deildarinnar undanfarin ár og bar fyrirliðaband Vesturbæjarliðsins eftir að Bjarni Guðjónsson lagði skóna á hiluna. Þetta er í annað sinn sem Baldur spreytir sig í atvinnumennsku en hann var áður á mála hjá Bryne í Noregi. Þaðan kom hann til KR árið 2009, en í Vesturbænum hefur hann unnið tvo Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. „Það er með gríðarlegum söknuði sem ég kveð KR, í bili allavega. Tími minn hjá KR hefur verið hreint stórkostlegur og það hefur verið mikill heiður að fá að taka þátt í velgengninni síðustu ár,“ segir Baldur í kveðju á Facebook-síðu sinni. „Ég vil þakka allri KR fjölskyldunni fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og ég vona að ég hafi náð að gefa eitthvað tilbaka. Vonandi hitti ég svo ykkur sem flest svo ég geti kvatt almennilega! Áfram KR“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Körfubolti Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Íslenski boltinn Fimm fengu bann fyrir slagsmálin Körfubolti Besta-spáin 2025: Litað út fyrir Íslenski boltinn „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Félögin spá Víkingum titlinum Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Besta-spáin 2025: Litað út fyrir Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ Sjá meira