Körfubolti

Kristófer og félagar steinlágu

Acox í leik með KR þar sem hann lék áður.
Acox í leik með KR þar sem hann lék áður. Vísir/Getty
Kristófer Acox og félagar í Furman í bandaríska háskólakörfuboltanum lágu illa á útivelli gegn College of Charleston.

Kristófer skoraði sex stig og tók átta fráköst, en leikurinn varð aldrei spennandi. Kristófer lék í 21 mínútu.

Yfirburðir Charleston voru of miklir, en þetta var fyrsti leikur tímabilsins.

Charleston-menn hittu eins og óðir menn úr þristum og það fór með Kristófer og félaga segir á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×