Kristófer Acox spilar í einni frægustu íþróttahöll Bandaríkjanna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2014 17:00 Kristófer Acox. Vísir/Vilhelm
Kristófer Acox og félagar hans Furman-háskólaliðinu mæta svo sannarlega á stóra sviðið í kvöld þegar liðið heimsækir Mike Krzyzewski og lærisveina hans í Duke. Leikurinn í kvöld fer fram í Cameron Indoor Stadium, heimavelli Duke, en það er ein frægasta íþróttahöll Bandaríkjanna ekki síst vegna ótrúlegrar stemmningar á leikjum Duke-liðsins sem gerir það að verkum að þetta er einn erfiðast útileikurinn í bandaríska háskólaboltanum. „Fyrir þremur árum spilaði ég sex minútur í leik i Iceland Express deildinni, á morgun byrja ég á móti Duke í Cameron Indoor Stadium," skrifaði Kristófer Acox á twitter-síðu sína. Kristófer Acox hefur byrjað tímabilið af krafti en hann er frákastahæsti leikmaður liðsins með 8,0 fráköst í leik og sá annar stigahæsti með 9,3 stig í leik. Kristófer hefur nýtt 75 prósent skota sinna í fyrstu þremur leikjunum. Mike Krzyzewski, oftast kallaður "Coach K", er einn frægasti þjálfari allra tíma en auk þess að þjálfa lið Duke þá stýrir hann einnig bandaríska landsliðinu. Duke-liðið er búið að vinna fimm fyrstu leiki tímabilsins og í aðalhlutverki hjá liðinu er hinn 211 sm hái Jahlil Okafor sem er strax á fyrsta ári orðinn einn öflugasti háskólaleikmaður Bandaríkjanna. Okafor er með 15,8 stig, 8,0 fráköst og 60 prósent skotnýtingu í fyrstu fimm leikjum sínum með Duke.fyrir 3 arum spiladi eg 6min i leik i IEX deildinni, a mrg byrja eg a moti Duke i Cameron Indoor Stadium. #startedfromthebottom #korfubolti— kristofer acox (@krisacox) November 25, 2014
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira