Körfubolti

Hörður Axel komst ekki á blað í stórtapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. Vísir/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher BC töpuðu fimmta leiknum í röð í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Nú töpuðu þeir gegn Alba Berlin, 82-56.

Hörður Axel komst ekki á blað fyrir Mitteldeutscher þrátt fyrir að leika í rúmar tuttugu mínútur, en hann gaf tvær stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Mitteldeutscher er í áttunda sæti deildarinnar, en á þó inni leik á liðin í kringum sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×