Körfubolti

Jón og félagar töpuðu á heimavelli í Evrópukeppninni

Jón í Evrópuleik með Unicaja.
Jón í Evrópuleik með Unicaja. vísir/afp
Jón Arnór Stefánsson og félagar í spænska liðinu Unicaja Malaga fóru ekki vel af stað í sextán liða úrslitum Euroleague í kvöld.

Þá tapaði liðið, 61-69, á heimavelli gegn Olympiacos frá Grikklandi.

Leikið er í tveim átta liða riðlum og var þetta fyrsti leikur beggja liða.

Jón Arnór komst ekki á blað í leiknum en hann lék í átta mínútur. Hann hefur verið að glíma við veikindi eins og fleiri félagar hans.

Jón tók tvö skot í leiknum en gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×