Körfubolti

Malaga í undanúrslit bikarsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með Malaga.
Jón Arnór Stefánsson í leik með Malaga. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson spilaði í tæpar tíu mínutur er Malaga tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum spænska konungbikarsins með sigri á Bilbao, 84-76.

Jón Arnór skoraði sjö stig fyrir Malaga sem mætir Barcelona í undanúrslitum á laugardaginn. Úrslitaleikur keppninnar fer svo fram á sunnudag.

Barcelona vann fyrr í dag sigur á Valencia, 85-80, en hinir tveir leikirnir í fjórðungsúrslitunum fara fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×