Körfubolti

Kanínurnar hans Craigs í banastuði

Craig, í rauða bolnum, er örugglega sáttur.
Craig, í rauða bolnum, er örugglega sáttur. vísir/daníel
Lið íslenska landsliðsþjálfarans í körfubolta, Craig Pedersen, er í fínum málum í úrslitakeppninni í körfubolta.

Lið Pedersen, Svendborg Rabbits, vann öruggan sigur, 78-88, á Randers Cimbria í kvöld.

Kanínurnar eru þar með komnar með 2-0 forystu í einvígi liðanna í átta liða úrslitum.

Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×