Körfubolti

Sigrún Sjöfn stigahæst í öruggum sigri

Sigrún Sjöfn í leik með KR.
Sigrún Sjöfn í leik með KR.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og stöllur hennar í Norrköping Dolphins eru í fínum málum í úrslitakeppninni í Svíþjóð.

Höfrungarnir unnu í kvöld öruggan sigur, 43-56, gegn Mark Basket og er komið í 2-0 í rimmu liðanna í átta liða úrslitum.

Sigrún Sjöfn var stigahæst í sínu liði með 11 stig. Hún tók einnig 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×