Innlent

Alþingi í beinni: Sérstök umræða um ívilnunarsamning við Matorku

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-og viðskiptaráðherra. Vísir/Vilhelm
Þingfundur hefst á Alþingi klukkan 15 og hefst á óundirbúnum fyrirspurnartíma ráðherra þar sem forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, iðnaðar-og viðskiptaráðherra og félags-og húsnæðismálaráðherra sitja fyrir svörum.

Klukkan 15:30 hefst svo sérstök umræða um ívilnunarsamning við Matorku en málshefjandi er Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar. Til andsvara er Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Matorka hyggur á stórfellt bleikjueldi á Reykjanesi og er hljóðar ívilnunarsamningur þess við ríkið upp á 450 milljónir króna samkvæmt Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá hefur fyrirtækið einnig óskað eftir 52 milljónum í þjálfunarstyrki.

Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verður fyrirtækið ekki styrkt meira en nemur 35 prósentum af heildarfjárfestingu, sem er undir leyfilegu hámarki samkvæmt EES reglum.

Landsamband fiskeldisstöðva er á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt ívilnunarsamninginn. Segir sambandið að hann skekki samkeppnisstöðu í bleikjueldi á Íslandi þar sem önnur fyrirtæki hafi ekki notið stuðnings frá hinu opinbera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×