Körfubolti

Tólf stig frá Jóni Arnóri í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik. vísir/daníel
Jón Arnór Stefánsson átti fínan leik fyrir Unicaja Malaga í sigri liðsins á Nizhny Novgorod í Meistaradeildinni í körfubolta í dag. Lokatölur 94-75 sigur Unicaja.

Unicaja byrjaði af krafti strax í fyrri hálfleik, en þeir lögðu þó grunninn að sigrinum í þriðja leikhluta. Þeir unnu hann 31-13 og voru í kjörstöðu fyrir lokaleikhlutann. Lokaniðurstaðan, 94-75, eins og áður segir.

Jón Arnór Stefánsson skoraði tólf stig, tók eitt frákast og gaf fjórar stoðsendingar í leiknum, en hann spilaði í um stundarfjórðung í leiknum.

Liðin tvö eru á botni síns riðils í Meistaradeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×