Körfubolti

Helena og félagar úr leik

vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir og félagar í Polkowice töpuðu 75-61 fyrir Wisla Kraków í undanúrslitum pólska körfuboltans, en leikið var í kvöld.

Helena skoraði ellefu stig, tók tvö fráköst á þeim 21 mínútum sem hún spilaði, en lokatölur urðu eins og fyrr segir 75-61.

Wisla hefur ekki tapað leik á tímabilinu og ekki kom tapið í dag, en liðið vann viðureignina 3-0. Helena og félagar því komnar í sumarfrí.

Tímabilið var fyrsta tímabil Helenu i Póllandi, en hún er einnig hluti af íslenska landsliðinu í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×